Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





Góð afkoma RARIK 2009


12 feb. 2010 11:21


Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2009 var 1.731 milljónir króna sem er betri árangur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þær aðgerðir sem ráðist var í fólust m.a. í samningum við starfsmenn um lækkun launa og styttingu vinnutíma, en einnig í niðurskurði á aðkeyptri þjónustu og almennum niðurskurði í rekstri. Rekstarafkoman var mun betri en 2008 sem rekja má til framangreindra aðgerða í rekstri, hækkunar á gjaldskrá og einnig til hagkvæmrar eigin raforkuframleiðslu. Niðurstaða rekstrarreiknings er þrátt fyrir þetta í járnum að teknu tilliti til fjármagnsliða.

 

Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11% frá árinu 2008 en rekstrargjöld hækkuðu um tæp 1,8%. Að undanskildum orkukaupum, orkuflutningi og afskriftum lækkuðu almenn rekstrargjöld um tæp 9%

 

Fjármagnsgjöld á árinu 2009 voru 1.804 milljónir króna sem má að stórum hluta rekja til áframhaldandi veikingar krónunnar og hárra vaxta á innlendum lánum. Í áætlunum ársins var gert ráð fyrir styrkingu krónunnar sem ekki gekk eftir.

 

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 331 milljón króna.

 

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 697 milljónir króna en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.843 milljónir króna eða 32,7% af veltu tíma-bilsins og hefur EBITDA félagsins hækkað um rúm 50% frá árinu 2008. Handbært fé frá rekstri var 1.847 milljónir króna.

 

Ákveðið var á árinu 2009 að nýta heimildir reikningsskilastaðla til þess að endurmeta rekstrarfjármuni í raforkuframleiðslu hjá dótturfélaginu Orkusölunni. Samkvæmt efnahags-reikningi voru heildareignir RARIK í árslok 35.663 milljónir króna, heildarskuldir námu 19.682 milljónum króna, eigið fé var 15.982 milljónir króna og eiginfjárhlutfall því 44,8%.

 

Ársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

 

Horfur

 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2010 eru traustar, en afkoman á næstu tímabilum ræðst hins vegar að verulegu leyti af gengi krónunnar, verðlagsþróun og almennri þróun efnahagsmála. Gengi krónunnar hefur lítið styrkst það sem af er ári og er ekki gert ráð fyrir styrkingu í áætlunum ársins, en vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og má gera ráð fyrir að það haldist út árið.

 

Gert er ráð fyrir samdrætti í fjárfestingum í dreifikerfum, en svipaðri orkusölu og árið áður, að undanskildri aukningu vegna dreifingar og sölu raforku á Húsavík, en rafdreifikerfið á Húsavík var keypt á síðasta ári og yfirtekið um áramót. Áframhaldandi ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að draga úr rekstrarkostnaði og gjaldskrár verið hækkaðar. Með þessum aðgerðum er reiknað með jákvæðri afkomu á árinu 2010.

 

Vegna afkomu ársins 2008 náðist ekki að uppfylla skilmála í erlendum lánasamningum. Með afkomu ársins 2009 eru allir skilmálar lánasamninga uppfylltir og náðst hefur samkomulag við erlenda lánardrottna um óbreytt lánskjör og að tímabundin hækkun álags verði felld niður.

 

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.



Ársreikningur RARIK 2009 var samþykktur á fundi stjórnar þann 11. febrúar 2010 og heimilaði stjórn birtingu hans fyrir opnun Kauphallar þann 12. febrúar 2010.

 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.



Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Skjöl





Ársreikningur 2009




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890