Innan skamms hefst borun vinnsluholu hitaveitu í Skarðsdal við Siglufjörð á vegum RARIK.
Jarðhitasvæðið í Skútudal hefur gefið nokkuð eftir að undanförnu og ekki liggur fyrir niðurstaða rannsókna á því hvað veldur. Svæðið uppfyllir ekki lengur þörfina fyrir heitt vatn á Siglufirði.
Dagana 5. – 9. ágúst 2010 voru boraðar tvær 70 metra djúpar hitastigulsholur á Skarðdal í Siglufirði með jarðbornum Hrímni. Markmiðið var að marka betur hitafrávik sem þar er og auðvelda staðsetningu á djúpri vinnsluholu. Þessi tilraunaborun gaf góða raun og með borun ca. 1000 metra djúprar vinnsluholu eru væntingar um að nægt vatn finnist a.m.k. til að fylla upp í þann skort sem orðið hefur vart á Siglufirði.
Ef góður árangur næst með hinni nýju holu í Skarðsdal standa vonir til að fullnægja megi heitavatnsþörf Siglfirðinga áður en langt um líður.
Verktaki (eftir útboð) við borun er Jarðboranir hf. og eftirlitsaðili er ÍSOR (Íslenskar Orkurannsóknir). Hitaveitustjóri RARIK er Haukur Ásgeirsson.