Við viljum vekja athygli á því að orkureikningur frá RARIK er ekki sendur til birtingar i heimabönkum. Hann birtist í heimabanka sem krafa, en það er ekki hægt að sjá reikninginn sundurliðaðann eins og áður.
Þessi ákvörðun er einn liður í sparnaði fyrirtækisins, en RARIK þarf að greiða bönkum og sparisjóðum þjónustugjald fyrir birtingu reikninga.
RARIK rekur Viðskiptavef á heimasíðu fyrirtækisins. Þar er hægt að skoða orkureikninga, notkun og jafnframt senda inn álestur. Til að komast inn á þennan vef þarf að skrá inn notandanafn og lykilorð. Sendið okkur tölvupóst á vidskiptaver@rarik.is og fáið lykilorðið sent til ykkar eða hafið samband við viðskiptaver Rarik í síma 528-9000.