Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





Árshlutareikningur RARIK 2010



Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2010 var 785 milljónir króna sem er í samræmi við áætlanir samstæðunnar. Rekstrarafkoman var betri en á fyrri hluta ársins 2009. Rekstrartekjur hækkuðu um tæplega 12,5% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um rúmlega 10,5% og var regluleg starfsemi fyrirtækisins í samræmi við áætlanir.

 

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 248 milljónir króna á tímabilinu en voru á sama tímabili árið áður neikvæðir um 875 milljónir króna. Þessi breyting stafar fyrst og fremst af styrkingu krónunnar, sem ekki var gert ráð fyrir í áætlunum.

 

Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur voru jákvæð um 233 milljónir króna.

 

Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var hagnaður á tímabilinu 1.080 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.356 milljónir króna eða 29% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.166 milljónir eða 28,1% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.566 milljónir króna.

 

Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2010 voru heildareignir RARIK 35.736 milljónir króna og heildarskuldir námu 18.674 milljónum króna. Eigið fé var 17.062 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 47,7%.

 

Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

 

 


 

 

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna

 

Helstu stærðir úr rekstri:

         
  

jan-jún

 

jan-jún

 

jan-jún

  

2010

 

2009

 

2008

            

Rekstrartekjur

4.669

 

4.151

 

3.650

Rekstrargjöld

3.884

 

3.514

 

3.295

Rekstrarhagnaður

785

 

637

 

355

Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)

248

 

-875

 

-2.280

Áhrif hlutdeildarfélags

233

 

38

 

-1.007

Hagnaður/tap  fyrir skatta

1.266

 

-200

 

-2.932

Tekjuskattur

-186

 

36

 

130

Hagnaður (Tap)

1080

 

-164

 

-2.802

            

EBITDA

1.356

 

1.166

 

782

Veltufé frá rekstri

1.566

 

1.169

 

767

            

Helstu stærðir úr efnahag:

         
  

30.6.2010

 

31.12.2009

 

31.12.2008

            

Eignir samtals

35.736

 

35.663

 

31.923

Eigið fé

17.062

 

15.982

 

13.941

Skuldir

18.674

 

19.682

 

17.982

            

Eiginfjárhlutfall

47,7%

 

44,8%

 

43,7%

 

 


 

 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2010 eru góðar, en heildarafkoman á næstu tímabilum ræðst hins vegar að verulegu leyti af þróun á gengi krónunnar og almennu ástandi efnahagsmála.

 

Á tímabilinu var lokið við 3 milljarða innlent skuldabréfaútboð og unnið er að frekari fjármögnun félagsins til ársins 2012. Sú vinna er unnin í samstarfi við viðskiptabanka félagsins og gengur samkvæmt áætlun, en gert er ráð fyrir að öll vaxtaberandi lán verði í formi langtímalána í lok ársins.

 

Árshlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2010 var samþykktur á fundi stjórnar þann 27. ágúst 2010.

 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Skjöl






Árshlutareikningur 1. janúar - 30. júní 2010




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890