Orkusalan.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir nýverið. Orkusalan er sem kunnugt er dótturfyrirtæki RARIK ohf.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykavíkur, afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Tjarnarbíói og voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 11 flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna, en þetta er í 11. skipti sem Íslensku Vefverðlaunin eru haldin.
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.