Verðskrá RARIK fyrir dreifingu og flutning raforku hækkar nú um áramótin og er hækkunin 7,5 % í dreifbýli og 5% í þéttbýli. Þjónustustugjöld ýmis hækka jafnframt um 7,5%. Hækkunin er tilkomin vegna hækkana á tilkostnaði. Hækkun í þéttbýli er í takt við hækkun tilkostnaðar, en hækkun í dreifbýli, sem er meiri stafar af því að tekjur í dreifbýli hafa verið undir tilkostnaði undanfarin ár. RARIK hefur þrátt fyrir það haldið aftur af gjaldskrárhækkunum í dreifbýli, m.a. vegna þess að framlag til verðjöfnunar í dreifbýli hefur lækkað að raungildi. Ljóst er að gjaldskrárhækkunin þyrfti að vera meiri í dreifbýli og búast má við frekari hækkunum til viðskiptavina umfram þéttbýli á næstu árum, nema framlag til verðjöfnunar í dreifbýli verði aukið.
Ný verðskrá RARIK fyrir dreifingu og flutning mun gilda frá og með 1. janúar 2012.
Ný verðskrá RARIK fyrir innmötun raforku
Með hliðsjón af breyttri verðskrá Landsnets um flutningstöp og kerfisþjónustu, sem nýlega var tilkynnt og taka mun gildi frá og með 1. janúar nk. breytist verðskrá RARIK fyrir innmötun til samræmis, enda skylt skv. raforkulögum. Um er að ræða 24% lækkun á liðnum tapaþáttur, sjá kafla b í verðskránni. Enn fremur bætist við nýtt gjaldþrep fastagjalda til samræmis við nýlegar breytingar á raforkulögum. Þá eru einnig gerðar þær breytingar að fastagjald virkjana í minnstu stærðarflokkunum lækkar nokkuð.
Ný verðskrá innmötunar tekur gildi frá og með 1. janúar 2012.