Nú á dögunum, í tilefni 100 ára afmælis Ljósárvirkjunar, ákvað stjórn RARIK að færa heimamönnum virkjunina að gjöf.
Virkjunin er tákn um framtakssemi og djörfung Eskfirðinga í byrjun síðustu aldar er þeir réðust í virkjun Ljósár og komu raflýsingu til allra íbúa staðarins. Virkjunin markaði tímamót í sögu Austurlands og er elsta varðveitta virkjun landsins.
Stjórn RARIK þótti því við hæfi á þessum tímamótum að fela sveitarfélaginu þennan minnisvarða til varðveislu.