Ljósárvirkjun á Eskifirði er með fyrstu vatnsaflsvirkjunum á Íslandi og tók til starfa í nóvember 1911. Eskifjörður varð fyrsti þéttbýlisstaður á Íslandi þar sem allir íbúar nutu raflýsingar. Virkjunin markaði tímamót í sögu Austurlands og er elsta varðveitta virkjun landsins.
Ljósárvirkjun var byggð sem jafnstraumsvirkjun en var breytt í riðstraumsvirkjun árið 1947. RARIK yfirtók Ljósárvirkjun árið 1958. Virkjunin á 100 ára afmæli um þessar mundir og varðveitt í dag sem minnisvarði um frumkvæði heimamanna á Eskifirði.