|
|
|
2 maí. 2010
Vegna mikillar hækkunar á innkaupsverði jarðstrengja telur RARIK nauðsynlegt að gera breytingar á verðskrá fyrirtækisins fyrir tengigjöld.
|

|
|
15 apr. 2010
Öskufall getur haft slæm áhrif á loftlínudreifikerfi raforku og orsakað rafmagnstruflanir. Þrátt fyrir flóð og öskufall hafa engar truflanir enn orðið á raforkudreifikerfi RARIK á hamfarasvæðinu.
|

|
|
31 mar. 2010
Ákveðið hefur verið að hækka verðskrá RARIK fyrir sölu á heitu vatni þann 1. apríl 2010 um 10%. Verðhækkunin tekur mið af gengis- og verðlagsþróun á undanförnum misserum. Vegna aðstæðna á fjármálamarkaði og gríðarlegra kostnaðarhækkana á aðföngum verða fjárfestingar vegna hitaveitna RARIK árið 2010 í lágmarki.
|

|
|
30 mar. 2010
Í máli Tryggva Þórs Haraldssonar forstjóra RARIK kom m.a. fram að rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK samstæðunnar fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2009 var 1.731 milljónir krónar sem er betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarafkoman var mun betri en 2008 sem að stórum hluta má rekja til þeirra aðgerða sem ráðist var í og fólust m.a. í niðurskurði aðkeyptrar þjónustu og annars rekstrarkostnaðar, samningum við starfsmenn um tekjuskerðingu og styttingu vinnutíma, ásamt hækkun gjaldskrár og
|

|
|
22 mar. 2010
Aðalfundur RARIK verður haldinn nk. föstudag kl. 15:00 í húskynnum RARIK að Bíldshöfða 9 í Reykjavík, 6.hæð.
|

|
|
16 mar. 2010
Bilun á línu Landsnets frá Búrfelli að Flúðum orsakaði straumleysi hjá viðskiptavinum RARIK í uppsveitum Árnessýslu í gær, 15. mars.
|

|
|
2 mar. 2010
Aukið framlag til orkudreifingar í strjálbýli lækkar orkuverð til sveita um 3 aura á kWh frá og með 1. mars 2010.
|

|
|
12 feb. 2010
Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2009 var 1.731 milljónir króna sem er betri árangur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þær aðgerðir sem ráðist var í fólust m.a. í samningum við starfsmenn um lækkun launa og styttingu vinnutíma, en einnig í niðurskurði á aðkeyptri þjónustu og almennum niðurskurði í rekstri.
|

|
|
30 des. 2009
Verðskrá RARIK fyrir dreifingu á raforku hækkar um 10% að jafnaði hinn 1. janúar 2010. Þá hækkar virðisaukaskattur á almenna raforkunotkun úr 24,5% í 25,5%. Hækkunin er fyrst og fremst tilkomin vegna verðlagshækkana, hækkana á aðföngum og gengisþróunar.
|

|
|
30 des. 2009
Virðisaukaskattur hækkar úr 24,5% í 25,5% þann 1. janúar 2010. Á sama tíma leggst nýr orkuskattur á raforku 12 aurar á hverja kílówattstund.
|

|
|
|