Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur
Eyðublöð

Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál






Umsókn um heimlögn

Umsókn um heimlögn er eyðublað sem fylla þarf út vegna nýrra tenginga og einnig breytinga, jafnt fyrir rafmagn og heitt vatn. Umsóknin þarf að berast með góðum fyrirvara. Að jafnaði eru heimtaugar aðeins afgreiddar að sumarlagi.

Til að hægt sé að afgreiða umsókn, þarf eftirfarandi að fylgja með henni:

  1. Greiða þarf heimtaugargjald og í sumum tilvikum getur RARIK farið fram á greiðslu heimtaugar áður en framkvæmdir hefjast.
  2. Þjónustubeiðni fyrir rafverktaka, útfyllt og undirrituð af löggiltum rafverktaka og húseiganda.
  3. Raflagnateikning samkvæmt ákvæðum í tæknilegum tengiskilmálum (á vef Samorku) sem inniheldur meðal annars grunnmynd með auðkenningu húsrýmis, þar sem mælakassi, aðaltafla og tengistaður jarðskauts/spennujöfnunartauga er sýndur. Sniðmynd er sýni inntak og töflur ásamt einlínumynd aðaltöflu. Málsett afstöðumynd af húsi á lóð.
Þjónustubeiðni fyrir rafverktaka
Flytja eða breyta?

Við flutning er mikilvægt að tilkynna nafnabreytingar til viðskiptavers RARIK. Tilkynna þarf hver er að flytja út og hver er að flytja inn (nafn og kennitala). Venjulega er bara lesið af mæli einu sinni á ári og því þarf að lesa sérstaklega af mæli við flutning. Notandi getur í flestum tilvikum sjálfur lesið af mæli og tilkynnt álestur til viðskiptavers.

Umsókn um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar (Orkustofnun)

Á rafhitasvæðum er nauðsynlegt að sækja um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar til Orkustofnunar.

Er rafmagnið í lagi?

Ef þú telur að gæði rafmagnsins séu á einhvern hátt ófullnægjandi, hvetjum við þig til að fylla út þetta eyðublað.

Skýrsla um tjón vegna spennusveiflu

Ef eyðublaðið er sent í bréf- eða tölvupósti (tjon@rarik.is), þarf að fylgja með afrit af persónuskilríkjum (t.d. ökuskírteini, vegabréfi). 
Ef eyðublaðinu er hins vegar skilað um netskil á Ísland.is jafngildir það undirskrift og skilríkjum. Í eyðublaðinu eru hnappar sem leiða mann áfram í gegnum ferlið um netskil.

 

Opnið eyðublaðið í Adobe Reader 8.1 eða nýrri útgáfu. Athugið að eingöngu er hægt að opna þetta eyðublað með Adobe Acrobat svo að hægt sé að tryggja örugg netskil.

 

Nánari leiðbeiningar um netskil




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Rafræn eyðublöð






Atvinnuumsókn
Sendu okkur fyrirspurn
Umsókn um auglýsingu / styrk




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890